Tveir leikir eru á dagskrá í kvöld í Olís-deild karla í handknattleik og lýkur þá 8. umferð deildarinnar.
Selfyssingar sem eru taplausir eftir fyrstu sjö leikina fá krefjandi verkefni þegar þeir mæta Haukum á Ásvöllum í Hafnarfirði klukkan 19:30. Haukar eru í 4. sæti með 10 stig en Selfoss er með 12 stig. Haukar geta því jafnað við Selfoss og FH sem einnig er með 12 stig.
Í KA-heimilinu á Akureyri kemur Afturelding í heimsókn. Afturelding er í 5. sæti með 9 stig en KA er í 10. sæti með 6 stig. Leikur KA og Aftureldingar hefst klukkan 18:30.