Botnliðin takast á í Mýrinni

Ragnheiður Sveinsdóttir og Hekla Rún Ámundadóttir fara til Akureyrar í …
Ragnheiður Sveinsdóttir og Hekla Rún Ámundadóttir fara til Akureyrar í kvöld en Laufey Ásta Guðmunsdóttir verður á heimavelli gegn Selfossi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Neðstu liðin í Olís-deild kvenna í handknattleik, Stjarnan og Selfoss, eigast við í Garðabænum í kvöld. 

Liðin eru með 3 stig hvort eftir átta leiki og þurfa því sárlega á stigum að halda. Leikurinn hefst í Mýrinni klukkan 19:30.

Á sama tíma tekur KA/Þór á móti Haukum í KA-heimilinu á Akureyri. Nýliðarnir í KA/Þór hafa byrjað býsna vel og eru með 8 stig eða 50% vinningshlutfall. Haukar eru með 10 stig og með sigri yrði liðið aðeins stigi á eftir efstu liðunum Val og ÍBV. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert