Íslendingarnir í bikarúrslit í Noregi

Þráinn Orri Jónsson átti góðan leik.
Þráinn Orri Jónsson átti góðan leik. Ljósmynd/elverum

Elverum tryggði sér í dag sæti í úrslitaleik norska bikarsins í handbolta með sannfærandi 37:26-sigri á Bækkelaget á útivelli. 

Þráinn Orri Jónsson var sterkur hjá Elverum og skoraði sex mörk en Sigvaldi Guðjónsson komst ekki á blað að þessu sinni. 

Elverum er á toppi norsku úrvalsdeildarinnar með 13 stig eftir átta leiki og hefur liðið unnið fjóra af sjö leikjum sínum í Meistaradeild Evrópu. Þar er Elverum í fjórða sæti D-riðils og með raunhæfa möguleika á að komast í útsláttakeppnina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert