Stórleikur Óðins skilaði sigri

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði átta mörk í Serbíu í dag …
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði átta mörk í Serbíu í dag fyrir GOG. mbl.is/Árni Sæberg

Óðinn Þór Ríkarðsson átti stórleik fyrir GOG og skoraði átta mörk þegar danska liðið vann fimm marka sigur gegn serbneska liðinu Vojvodina í 3. umferð EHF-bikarsins í handknattleik í Serbíu í dag en leiknum lauk með 32:27-sigri GOG.

GOG leiddi með einu marki í hálfleik, 13:12, en GOG byrjaði seinni hálfleikinn af miklum krafti og var munurinn á liðunum orðinn sjö mörk þegar fimmtán mínútur voru til leiksloka. Niclas Vest Kirkelokke átti einnig stórleik í liði GOG og skoraði átta mörk, líkt og Óðinn Þór.

Síðari leikur liðanna fer fram í Danmörku, 24. nóvember næstkomandi, og er GOG í afar þægilegri stöðu fyrir seinni leikinn um næstu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert