Mikilvægur sigur Elverum

Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði þrjú mörk fyrir Elverum í Meistaradeildinni …
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði þrjú mörk fyrir Elverum í Meistaradeildinni í dag. Ljósmynd/Elverum

Sigvaldi Björn Guðjónsson átti fínan leik fyrir Elverum og skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum þegar liðið vann eins marks sigur gegn Dinamo Búkarest í Meistaradeildinni í handknattleik í Noregi í dag en leiknum lauk með 29:28-sigri Elverum. 

Staðan í hálfleik var 15:12, Dinamo Búkarest í vil en leikmenn Elverum spýttu verulega í lófana í seinni hálfleik og unnu að lokum sanngjarnan eins marks sigur. Þráinn Orri Jónsson komst ekki á blað hjá Elverum sem er í fjórða sæti D-riðils með 10 stig eftir fyrstu átta umferðirnar. Tveimur stigum minna en topplið Wisla Plock.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert