Geir mætti Evrópumeisturunum

Geir Guðmundsson
Geir Guðmundsson mbl.is/Árni Sæberg

Akureyringurinn Geir Guðmundsson mætti núverandi Evrópumeisturum Montpellier með liði sínu Cesson Rennes í franska handboltanum í kvöld. 

Leikurinn fór fram í Montpellier og heimamenn höfðu betur 34:29. Geir skoraði eitt mark að þessu sinni fyrir Rennes. 

Montpellier hefur unnið sjö leiki af níu og gert eitt jafntefli í deildinni í vetur. Liðið á leik til góða á efsta liðið Chambery. 

Rennes er í 9. sæti af 14 liðum en liðið hefur unnið þrjá leiki af tíu, gert eitt jafntefli og tapað sex. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert