Kiel auðveldlega í undanúrslitin

Alfreð Gíslason.
Alfreð Gíslason. Ljósmynd/Jonas Guettler

Strákarnir hans Alfreðs Gíslasonar áttu ekki í vandræðum með að tryggja sér sæti í undanúrslitunum í þýsku bikarkeppninni í handknattleik í kvöld.

Kiel tók á móti Melsungen og vann stórsigur 31:19 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 19:8. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði eitt mark fyrir Kiel og gaf tvær stoðsendingar en sænski hornamaðurinn Niclas Ekberg var markahæstur í liðinu með 7 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert