Grátlegt tap í fyrsta leik hjá Þóri

Julia Behnke sækir að marki Noregs í dag.
Julia Behnke sækir að marki Noregs í dag. AFP

Noregur þurfti að sætta sig við afar svekkjandi 32:33-tap fyrir Þýskalandi í fyrstu umferð Evrópumóts kvenna í handbolta í Frakklandi dag. Þórir Hergeirsson er þjálfari norska liðsins. 

Staðan í hálfleik var 16:15, norska liðinu í vil og eftir æsispennandi seinni hálfleik þurfti norska liðið að játa sig sigrað. Emily Bolk skoraði sigurmarkið í blálokin. Norska liðið mætir Tékklandi á mánudaginn kemur. 

Í C-riðli mættust Holland og Ungverjaland og hafði Holland betur, 28:25. Staðan í hálfleik var 11:11, en hollenska liðið var sterkara í seinni hálfleik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert