Viggó tryggði Íslendingaliðinu sigur

Viggó Kristjánsson skoraði sjö mörk í kvöld.
Viggó Kristjánsson skoraði sjö mörk í kvöld. Ljósmynd/Handball-westwien.at

Viggó Kristjánsson var markahæstur og skoraði sigurmarkið þegar West Wien vann 27:26-útisigur á HSG Graz í austurrísku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Viggó skoraði sjö mörk í leiknum, þar af síðasta markið þegar 45 sekúndur voru eftir. Heimamönnum tókst ekki að nýta þann tíma til að jafna. Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði fjögur mörk fyrir West Wien og Guðmundur Hólmar Helgason tvö, en Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið.

Ísak Rafnsson skoraði svo fjögur mörk fyrir Schwaz í 26:24-útisigri á Bregenz í sömu deild. 

West Wien er nú í 3. sæti deildarinnar með 18 stig, fimm stigum frá toppnum og einu stigi á eftir næsta liði, en Schwaz er í 6. sæti með 16 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert