Annar sigur Eyjamanna í röð

Theodór Sigurbjörnsson átti góðan leik.
Theodór Sigurbjörnsson átti góðan leik. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

ÍBV vann sinn annan sigur í röð í Olísdeild karla í handbolta er liðið heimsótti Gróttu og vann sanngjarnan 27:24-sigur. Staðan í hálfleik var 15:13, ÍBV í vil. Grótta komst yfir snemma í seinni hálfleik, en ÍBV var fljótt að snúa því sér í vil og sigla góðum sigri í hús. 

Theodór Sigurbjörnsson var markahæstur í liði ÍBV með sex mörk og þeir Dagur Arnarsson, Kári Kristján Kristjánsson og Sigurbergur Sveinsson skoruðu fjögur mörk hvor. Alexander Jón Másson og Sveinn Jose Rivera skoruðu sex mörk hvor fyrir Gróttu. 

Með sigrinum fór ÍBV upp í tíu stig og í sjöunda sæti. Grótta er í næstneðsta sæti með aðeins sex stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert