Óðinn Þór í liði umferðarinnar

Óðinn Þór Ríkharðsson.
Óðinn Þór Ríkharðsson. mbl.is/Árni Sæberg

Óðinn Þór Ríkharðsson, hægri hornamaður danska úrvalsdeildarliðsins GOG, er í liði 16. umferðar í dönsku úrvalsdeildinni hjá netmiðlinum hbold.dk.

Óðinn Þór, sem gekk í raðir GOG frá FH í sumar, fór á kostum í sigri sinna manna gegn Mors-Thy um nýliðna helgi. Hann skoraði 8 mörk úr átta skotum og með sigrinum komst GOG í annað sæti deildarinnar þar sem það er einu stigi á eftir Aalborg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert