Bjarki í undanúrslit eftir dramatík

Bjarki Már Elísson og félagar eru komnir í undanúrslit þýska …
Bjarki Már Elísson og félagar eru komnir í undanúrslit þýska bikarsins.

Füchse Berlín tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum þýska bikarsins í handbolta með 37:35-heimasigri á Rhein-Neckar Löwen í framlengdum Íslendingaslag. 

Löwen var með fjögurra marka forskot þegar skammt var eftir af venjulegum leiktíma, 29:25, en með mögnuðum endaspretti tókst Füchse að jafna metin og tryggja sér framlengingu. Þar voru heimamenn sterkari. 

Bjarki Már Elísson var mjög sterkur hjá Füchse og skoraði sjö mörk. Alexander Petersson skoraði tvö fyrir Löwen en Guðjón Valur Sigurðsson skoraði ekki fyrir Löwen í leiknum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert