Fimmti sigur Aðalsteins í röð

Aðalsteinn Eyjólfsson.
Aðalsteinn Eyjólfsson. Ljósmynd/Erlangen

Guðjón Valur Sigurðsson og Alexander Petersson skoruði samtals ellefu mörk fyrir Rhein Neckar Löwen þegar liðið lagði Stuttgart að velli 34:29 í efstu deild þýska handboltans í kvöld. 

Guðjón var næstmarkahæstur með 6 mörk, þar af eitt úr víti, og gaf auk þess eina stoðsendingu. Alexander skoraði fimm mörk í aðeins sjö tilraunum fyrir Löwen sem er í 2. sæti deildarinnar. Hefur liðið unnið 15 leiki af 18 og gert eitt jafntefli. Frammistaða Flensburgarliðsins hefur hins vegar verið með ólíkindum en liðið er í toppsætinu með 18 sigra í 18 leikjum. 

Erlangen er í 10. sæti og liðinu gengur afar vel undir stjórn Aðalsteins Eyjólfssonar um þessar mundir því Erlangen hefur unnið fimm leiki í röð. Erlangen sigraði í kvöld Ludwigshafen 26:22. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert