Arnór og félagar björguðu í jafntefli

Arnór Þór Gunnarsson
Arnór Þór Gunnarsson dkb-handball-bundesliga.de/de/

Arnór Þór Gunnarsson og félagar í Bergischer náðu góðum endasprett til að kreista fram jafntefli, 22:22, í leik sínum gegn Lemgo í þýsku efstu deildinni í handknattleik í dag.

Arnór og félagar byrjuðu leikinn betur en lendu undir skömmu fyrir leikhlé. Lið Lemgo bætti svo í forystu sína eftir hlé og var mest fimm mörkum yfir, 20:15, en þá skoruðu leikmenn Bergischer fimm mörk í röð og Arnór sjálfur jöfnunarmarkið. Arnór skoraði alls þrjú mörk er gestirnir jöfnuðu að lokum í 22:22 og þar við sat.

Bergischer er í 8. sæti deildarinnar eftir 18 umferðir með 19 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert