Andlát: Kolbeinn Aron Arnarson

Kolbeinn Aron Arnarson.
Kolbeinn Aron Arnarson. mbl.is/Sigfús Gunnar

Kolbeinn Aron Arnarson, markmaður ÍBV í handbolta, er látinn. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu á aðfangadag, 29 ára að aldri.

Frá þessu er greint á heimasíðu ÍBV á eftirfarandi hátt:

Kolbeinn Aron var einn af lykilmönnum í uppbyggingu og velgengni handboltans í Vestmannaeyjum undanfarin ár. Eftir að hafa æft og leikið með yngri flokkum ÍBV lék hann 17 ára gamall sinn fyrsta leik með meistaraflokki árið 2006. Alls spilaði hann 279 leiki fyrir félagið, sem gerir hann að fjórða leikjahæsta leikmanni þess frá upphafi.

Kolbeinn Aron átti stóran þátt í því er liðið varð eftirminnilega Íslandsmeistari í fyrsta skipti árið 2014 og bikarmeistari ári síðar.

Fráfall Kolbeins Arons er öllum sem þekktu hann mikið áfall. Hjá okkur sem vorum með honum í handboltanum situr eftir sorg og söknuður; þakklæti og virðing.

Fjölskylda Kolbeins Arons vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem hafa sýnt henni samhug og stuðning þessa erfiðu daga.

ÍBV sendir fjölskyldunni dýpstu samúðarkveðjur.

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert