Oddur tilnefndur bestur í desember

Oddur Gretarsson.
Oddur Gretarsson. Ljósmynd/Balingen

Oddur Gretarsson hefur verið tilnefndur sem besti leikmaður desembermánaðar í þýsku 2. deildinni í handknattleik eftir frammistöðu sína með liði sínu Balingen.

Balingen vann tíu leiki í röð undir lok árs og náði toppsætinu fyrir áramótin. Oddur er markahæsti leikmaður liðsins en í fjórum leikjum í desember skoraði hann 27 mörk, eða 6,75 mörk að meðaltali í leik. Oddur hefur skorað 119 mörk á tímabilinu og er í 5. sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar.

HÉR er hægt að taka þátt í kosningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert