Elvar hefur samið við Stuttgart

Elvar Ásgeirsson, leikmaður Afttureldingar, hefur samið við Stuttgart til næstu …
Elvar Ásgeirsson, leikmaður Afttureldingar, hefur samið við Stuttgart til næstu tveggja ára. mbl.is/Árni Sæberg

Handknattleiksmaðurinn Elvar Ásgeirsson hefur samið við þýska efstudeildarliðið TVB 1898 Stuttgart til tveggja ára. Hann yfirgefur Aftureldingu eftir núverandi keppnistímabil og flytur til Þýskalands í sumar. 

Elvar staðfesti væntanleg vistaskipti í samtali við mbl.is. 

Elvar dvaldi hjá Stuttgart-liðinu í nóvember við æfingar og í framhaldinu buðu forráðamenn félagsins honum samning sem nú hefur orðið að veruleika. Síðustu endarnir voru hnýttir fyrir helgina.

Stuttgart situr nú í 12. sæti af 18 liðum þýsku 1. deildarinnar með 15 stig að loknum 20 leikjum.

Elvar er 24 ára gamall og hefur alla tíð leikið með Aftureldingu, m.a. upp yngri flokkana og verið síðustu árin einn burðarása meistaraflokksliðsins sem um þessar mundir situr í fimmta sæti Olís-deildarinnar og er komið í átta liða úrslit bikarkeppninnar. Elvar er markahæsti leikmaður Aftureldingar í Olís-deildinni með 77 mörk eftir 15 leiki.

„Mig hefur dreymt um leika í þýsku búndeslígunni síðan ég var lítill svo segja má að draumur rætist með þessu samkomulagi,“  sagði Elvar í samtali við mbl.is. „Ég er gríðarlega ánægður með að hafa náð samkomulagi við Stuttgart.“

Elvar segist hafa heimsótt félagið í og æft með liði þess. „Mér líst hrikalega vel á allar aðstæður hjá liðinu. Allt virðist vera til alls. Aðstæður eru fyrsta flokks auk þess sem það ákveðin fjölskyldustemning yfir öllu. Ég er viss um að ég a eftir að stíga framfaraskref á næstu árum,“ sagði Elvar.

„Ég geri mér grein fyrir að það verður mikið stökk fyrir mig að fara úr deildinni hér heima og í harðan heim í þýska handboltanum. Ég verð að leggja hart að mér á næstu vikum og mánuðum til þess að stimpla mig inn í deildina þegar ég mæti til leiks.

Fram undan hjá mér er hins vegar að ljúka keppnistímabilinu af krafti með Aftureldingu og kveðja liðið mitt með titlum,“ sagði Elvar.

Elvar hefur leikið með B-landsliðinu og eins tók hann þátt í nokkrum æfingum A-landsliðsins á milli jóla og nýárs. Hann vonast til þess að þegar hann verður orðinn leikmaður Stuttgart og byrjaður að leika í sterkari deild geti hann bankað fastar á dyr landsliðsins. „Ég vonast til þess að takist mér vel upp hjá Stuttgart eigi ég betri möguleika á að fá að láta ljós mitt skína með landsliðinu. Vonandi tekst mér að stíga framfaraskref í Þýskalandi, það er að minnsta kosti stefnan,“ sagði Elvar Ásgeirsson, handknattleiksmaður hjá Aftureldingu og verðandi atvinnumaður hjá þýska liðinu TVB 1898 Stuttgart, í samtali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert