Naumur sigur Löwen í Meistaradeildinni

Alexander Petersson skoraði þrjú mörk.
Alexander Petersson skoraði þrjú mörk. Ljósmynd/dkb-handball-bundesliga.de/de/

Þýska liðið Rhein Neckar Löwen vann sætan 30:29-sigur á Kielce frá Póllandi í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld. Með sigrinum fór Löwen upp fyrir Kielce í A-riðli, en bæði lið eru með 14 stig í 4. og 5. sæti. 

Alexander Petersson skoraði þrjú mörk fyrir Löwen og Guðjón Valur Sigurðsson skoraði tvö mörk. Andy Schmid var markahæstur með átta mörk. Julien Aguinagalde skoraði fimm mörk fyrir Kielce. 

Ein umferð er eftir í riðlinum og eru bæði lið komin áfram í útsláttarkeppnina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert