ÍBV síðasta liðið í Höllina

Ester Óskarsdóttir átti góðan leik fyrir ÍBV.
Ester Óskarsdóttir átti góðan leik fyrir ÍBV.

ÍBV varð í dag síðasta liðið til að tryggja sætið sitt í undanúrslitum CocaCola-bikars kvenna í handbolta með 28:21-sigri á KA/Þór á heimavelli. Staðan í hálfleik var 13:11, ÍBV í vil. 

Ester Óskarsdóttir og Greta Kavaliauskaite voru markahæstar hjá ÍBV með fimm mörk og Ásta Björt Júlíusdóttir skoraði fjögur. Stórleikur Mörthu Hermannsdóttur dugði skammt hjá KA/Þór, en hún skoraði níu mörk. 

Það verða ÍBV, Valur, Stjarnan og Fram sem berjast um bikarmeistaratitilinn í Laugardalshöllinni í næsta mánuði. Undanúrslitin fara fram 7. mars og úrslitaleikurinn tveimur dögum síðar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert