Oddur markahæstur í sigri toppliðsins

Oddur Gretarsson skoraði sjö mörk.
Oddur Gretarsson skoraði sjö mörk.

Oddur Gretarsson átti enn og aftur góðan leik fyrir Balingen, er liðið vann Elbflorenz á heimavelli sínum í þýsku B-deildinni í handbolta í dag, 30:23. Oddur var markahæstur í sínu liði með sjö mörk. 

Balingen er í toppsæti deildarinnar með 39 stig, fjórum stigum meira en Coburg sem er í öðru sæti. Liðið er svo með fimm stiga forskot á Nordhorn í þriðja sætinu, en efstu tvö liðin fara upp í deild þeirra bestu. 

Ragnar Jóhannsson skoraði fimm mörk fyrir Hüttenberg í 27:24-sigri á Emsdetten á útiveli. Hüttenberg er í 10. sæti deildarinnar með 22 stig. Sigtryggur Daði Rúnarsson lék svo ekki með Lübeck-Schwartau í 26:19-sigri á Rimpar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert