Stefán Rafn markahæstur í Meistaradeildarleik

Stefán Rafn Sigurmannsson.
Stefán Rafn Sigurmannsson. Ljósmynd/pickhandball.hu

Landsliðsmaðurinn Stefán Rafn Sigurmannsson skilaði sínu fyrir ungverska liðið Pick Szeged þegar liðið mætti franska liðinu Nantes í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handbolta í kvöld.

Stefán Rafn skoraði 6 mörk í átta skotum og var markahæstur sinna manna en það dugði skammt því ungversku meistararnir töpuðu leiknum 29:26.

Pick Szeged er í öðru sæti í B-riðlinum á eftir franska meistaraliðinu Paris SG með 19 stig en Nantes er í þriðja sætinu með 13 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert