Hansen og Neagu best í heiminum

Cristina Neagu.
Cristina Neagu. AFP

Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, hefur útnefnt besta handknattleiksfólk heimsins fyrir árið 2018.

Cristina Neagu frá Rúmeníu er leikmaður ársins í kvennaflokki en hún hlýtur þennan titil í fjórða sinn og er orðin sú sigursælasta í kjörinu frá upphafi.

Mikkel Hansen frá Danmörku er leikmaður ársins í karlaflokki og hreppir titilinn í þriðja skipti. Aðeins Nikola Karabatic frá Frakklandi hefur áður verið valinn þrisvar en þetta kjör hefur farið fram frá árinu 1988.

Mikkel Hansen.
Mikkel Hansen. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert