Hannes tekur ekki við Selfyssingum

Hannes Jón Jónsson tekur ekki við Selfyssingum eins og til …
Hannes Jón Jónsson tekur ekki við Selfyssingum eins og til stóð. Ljósmynd/Westwien

Hannes Jón Jónsson hefur rift samningi sínum við handknattleiksdeild Selfoss og mun ekki taka við þjálfun karlaliðsins á næsta tímabili eins og til stóð.

Hannes átti að að taka  við liðinu af Patreki Jóhannessyni sem mun taka við danska liðinu Skjern eftir tímabilið en Hannes er í dag þjálfari Bietigheim í þýsku 1. deildinni.

Hannes var ráðinn til Bietigheim í byrjun mars og átti að stýra liðinu út tímabilið en Bietigheim er í næst neðsta sæti deildarinnar með 8 stig eftir 26 umferðir. Selfyssingar leita því áfram að nýjum þjálfara fyrir næsta tímabil en Hannes ætlar sér að starfa áfram á erlendri grundu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert