Akureyri handboltafélag verður Þór

Akureyri leikur undir merkjum Þórs frá og með næsta tímabili.
Akureyri leikur undir merkjum Þórs frá og með næsta tímabili. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Akureyri handboltafélag leikur undir merkjum Þórs frá og með næsta tímabili. Þór og KA skipuðu saman Akureyri handboltafélag, en KA sleit samstarfinu fyrir síðasta tímabil. 

Síðustu tvö tímabil hefur Þór því leikið undir merkjum Akureyrar handboltafélags. Akureyri féll úr efstu deild á leiktíðinni, eftir að liðið fór upp um deild ásamt KA árið 2017. 

Samkvæmt fréttatilkynningu á heimasíðu Þórs á eftir að kjósa í stjórn og ráð Þórs, þar sem talsverð vinna fer í að gera upp og loka rekstri Akureyrar handboltafélags. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert