HK jafnaði gegn Fylki

Elna Ólöf Guðjónsdóttir sækir að marki Fylkis í leiknum í …
Elna Ólöf Guðjónsdóttir sækir að marki Fylkis í leiknum í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

HK jafnaði metin gegn Fylki 1:1 í umspili liðanna um laust sæti í úrvalsdeild kvenna í handknattleik á næsta keppnistímabili. HK sigraði 31:20 í Árbænum í kvöld. 

Díana Sigmarsdóttir og Sigríður Hauksdóttir voru markahæstar í Kópavogsliðinu með 6 mörk hvor en hjá Fylki var Hrafnhildur Irma Jónsdóttir langatkvæðamest með 8 mörk. 

Oddaleikur liðanna verður í Digranesi á sunnudagskvöldið klukkan 20. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert