Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar í ungverska liðinu Pick Szeged eru í erfiðri stöðu í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta eftir 23:31-tap á útivelli fyrir Vardar frá Norður-Makedóníu í fyrri leik liðanna í dag.
Staðan í hálfleik var 14:12 og þegar skammt var eftir var staðan 21:20, Vardar í vil. Vardar skoraði hins vegar tíu af síðustu þrettán mörkum leiksins og tryggði sér sannfærandi sigur og góða stöðu fyrir síðari leikinn í Ungverjalandi.
Stefán Rafn skoraði tvö mörk fyrir Pick Szeged og var annað þeirra síðasta mark liðsins og kom af vítalínunni. Síðari leikurinn fer fram sunnudaginn 5. maí.