Gullið að ganga úr greipum Stefáns

Stefán Rafn Sigurmannsson.
Stefán Rafn Sigurmannsson. mbl.is/Eggert

Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar í Pick Szeged eiga litla von um að vinna ungverska meistaratitilinn í handbolta eftir skell gegn Veszprém í fyrri úrslitaleik liðanna í dag.

Veszprém vann leikinn með 11 marka mun, 35:24, og er því með mjög gott forskot fyrir seinni leik liðanna á sunnudaginn.

Stefán Rafn skoraði eitt mark í leiknum í dag. Hann varð deildarmeistari með Pick Szeged sem endaði fimm stigum fyrir ofan Veszprém.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert