Aron og félagar skoruðu 47 mörk

Aron Pálmarsson og félagar voru í stuði.
Aron Pálmarsson og félagar voru í stuði. AFP

Aron Pálmarsson og samherjar hans Í Barcelona unnu afar sannfærandi 47:27-sigur á Huesca á útivelli í lokaleik spænsku A-deildarinnar í handbolta í dag. 

Aron átti fínan leik fyrir Barcelona og skoraði úr öllum fjórum skotum sínum. Barcelona er búið að vera með fáheyrða yfirburði í spænskum handbolta undanfarin ár og vann liðið 29 leiki og gerði eitt jafntefli á leiktíðinni. 

Stefán Darri Þórsson og félagar í Alcobendas töpuðu fyrir Valladolid á heimavelli, 38:27. Stefán skoraði eitt mark, en Alcobendas hafnaði í neðsta sæti deildarinnar með aðeins níu stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert