Lærisveinar Hannesar eiga enn von

Hannes Jón Jónsson.
Hannes Jón Jónsson. Ljósmynd/handball-westwien.at

Bietigheim undir stjórn Hannesar Jóns Jónssonar vann dýrmætan 25:23-heimasigur á Lemgo í efstu deild Þýskalands í handbolta í kvöld. 

Staðan í hálfleik var 13:10, Bietigheim í vil. Christian Schäfer var markahæstur hjá Bietigheim með sex mörk á meðan tíu mörk Patrick Zieker dugðu ekki til fyrir Lemgo. 

Með sigrinum fór Bietigheim upp í 13 stig og upp að hlið Gummersbach sem er í síðasta örugga sætinu í deildinni þegar tvær umferðir eru eftir. 

Bietigheim á því ágæta á að bjarga sér frá falli, þrátt fyrir að liðið hafi aðeins unnið einn leik á milli 22. nóvember og 5. maí. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert