Skjern knúði fram oddaleik í undanúrslitaeinvígi sínu gegn GOG um danska meistaratitilinn í handknattleik í dag.
Tandri Már Konráðsson og Björgvin Páll Gústavsson leika með liði Skjern en Óðinn Þór Ríkharðsson er í liði GOG og skoraði hann eitt mark í dag. GOG vann fyrri leikinn á sínum heimavelli, 28:25.
Liðin munu því mætast í oddaleik um sæti í úrslitunum en sá leikur fer fram á fimmtudaginn. Skjern er ríkjandi danskur meistari.