Kristinn Hrannar í Fram

Kristinn Hrannar Bjarkson skrifaði undir tveggja ára samning við Fram …
Kristinn Hrannar Bjarkson skrifaði undir tveggja ára samning við Fram í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Handknattleikskappinn Kristinn Hrannar Bjarkason er genginn til liðs við Fram en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Kristinn Hrannar kemur til félagsins frá Aftureldingu í Mosfellsbæ og skrifar hann undir tveggja ára samning við Safamýrarliðið.

Kristinn er fæddur árið 1995 og er hornamaður að upplagi en hann getur líka spilað í skyttustöðunni. Hann skoraði eitt mark að meðaltali í úrvalsdeildinni í vetur í 21 leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert