Ekki búnir að hitta í mark enn þá

Íslandsmeistaralið Selfoss.
Íslandsmeistaralið Selfoss. Ljósmynd/Guðmundur Karl

Íslandsmeistaralið Selfoss í handbolta karla er enn þjálfaralaust en Patrekur Jóhannesson kvaddi liðið með Íslandsmeistaratitlinum í síðasta mánuði og tekur við þjálfun danska úrvalsdeildarliðsins Skjern í næsta mánuði.

Í janú­ar gerði Sel­foss samn­ing við Hann­es Jón Jóns­son um að hann tæki við þjálf­un liðsins í sum­ar en í apríl rifti Hann­es samn­ingi sín­um við Sel­fyss­inga og gerði tveggja ára samn­ing við þýska liðið Bietig­heim.

„Það er lítið að frétta af okkar þjálfaramálum. Það er ekkert komið í hendi enn sem komið. Við höfum lagt áherslu á að finna góðan íslenskan þjálfara enda teljum við að við eigum talsvert mikið af frambærilegum þjálfurum hér á landi. Við erum ekki búnir að hitta í mark enn þá. Við erum búnir að ræða við ýmsa þjálfara eftir Hannes Jón sveik okkur en það hefur ekki skilað neinu enn þá,“ sagði Þórir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar Selfoss, í samtali við mbl.is í dag.

„Við höfum haldið það í nokkrar vikur að við værum að klára þessi mál og að landa góðum manni en svo hefur það ekki gengið upp á síðustu metrunum. Stundum virkar Hellisheiðin löng í aðra áttina,“ sagði Þórir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert