Perla Ruth til liðs við Fram

Bjarni Kristinn Eysteinsson og Perla Ruth Albertsdóttir.
Bjarni Kristinn Eysteinsson og Perla Ruth Albertsdóttir. Ljósmynd/Fram

Handknattleikskonan Perla Ruth Albertsdóttir hefur gengið til liðs við Fram en handknattleiksdeild félagsins staðfesti þetta á facebookvef sínum rétt í þessu.

Perla gerir tveggja ára samning við Fram sem tapaði í úrslitum Íslandsmótsins gegn Val á síðustu leiktíð en Framarar urðu þar áður Íslandsmeistarar tvö ár í röð. Perla er 23 ára gömul og hefur verið lykilmaður í liði Selfoss undanfarin ár sem og í landsliðinu þar sem hún hefur spilað 21 landsleik og skorað í þeim 34 mörk.

Með Selfossi á hún 136 leik og skorað í þeim 457 mörk en hún er fjölhæfur leikmaður og getur spilað bæði í horni og á línunni. Hún var markahæsti leikmaður Selfoss á síðustu leiktíð en liðið hafnaði í 8. og neðsta sæti Olísdeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert