Sandra og Björn framlengja við ÍBV

Sandra Dís skýtur að marki Fram á síðustu leiktíð.
Sandra Dís skýtur að marki Fram á síðustu leiktíð. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Handknattleiksdeild ÍBV hefur framlengt samninga sína við Söndru Dís Sigurðardóttur og Björn Viðar Björnsson. Samningar leikmannanna eru til eins árs. 

Þau spiluðu bæði stórt hlutverk hjá ÍBV á síðustu leiktíð. Björn Viðar lék vel í markinu hjá karlaliðinu sem fór í undanúrslit og Sandra Dís skoraði 35 mörk í 20 leikjum fyrir kvennaliðið sem einnig fór í undanúrslit. 

„Það er okkur ánægja að tilkynna að Sandra Dís Sigurðardóttir og Björn Viðar Björnsson hafa bæði skrifað undir eins árs samninga við félagið.

Bæði spiluðu þau stór hlutverk hjá ÍBV handboltaliðunum á síðustu leiktíð og því mikilvægur áfangi að tryggja okkur krafta þeirra áfram," segir í tilkynningu sem ÍBV sendi frá sér í dag. 

Björn Viðar í markinu hjá ÍBV gegn Haukum á síðustu …
Björn Viðar í markinu hjá ÍBV gegn Haukum á síðustu leiktíð. Ljósmynd/Sigfús Gunnar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert