Stórleikur Dags dugði ekki gegn Frökkum

Arnór Snær Óskarsson skýtur að marki Frakka í dag.
Arnór Snær Óskarsson skýtur að marki Frakka í dag. Ljósmynd/IHF

Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 19 ára og yngri leikur um sjöunda sæti á HM í Norður-Makedóníu eftir 24:30-tap fyrir Frökkum í dag. 

Dagur Gautason átti stórleik fyrir íslenska liðið og skoraði átta mörk. Það dugði hins vegar skammt gegn sterku liði Frakka sem var yfir allan leikinn. 

Einar Örn Sindrason og Eiríkur Guðni Þórarinsson skoruðu þrjú mörk og Arnór Snær Óskarsson, Guðjón Baldur Ómarsson, Tjörvi Týr Gíslason og Blær Hinriksson skoruðu allir tvö mörk. 

Ísland leikur við Ungverjaland eða Spánn í leik um sjöunda sætið á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert