Stephen í markið í Garðabænum

Stephen Nielsen í leik með ÍR á síðustu leiktíð.
Stephen Nielsen í leik með ÍR á síðustu leiktíð. mbl.is/Árni Sæberg

Markvörðurinn Stephen Nielsen hefur náð samkomulagi við Stjörnuna um að ganga til liðs við félagið fyrir komandi leiktíð í handboltanum.

Stephen er byrjaður að æfa með Stjörnunni samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, en honum er ætlað að fylla skarð Sveinbjörns Péturssonar, sem neyddist til að hætta í sumar vegna meiðsla.

Stephen lék síðast með ÍR, en hann hefur einnig leikið með ÍBV, Val og Fram hér á landi. Hann spilaði fyrsta landsleik sinn fyrir Ísland árið 2016.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert