Búið að draga í bikarkeppninni í handbolta

Björgvin Hólmgeirsson og samherjar hans í ÍR mæta Víkingi í …
Björgvin Hólmgeirsson og samherjar hans í ÍR mæta Víkingi í 1. umferð Coca Cola bikarsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í dag var dregið til 1. umferðar í Coca Cola-bikarkeppni karla í handknattleik og fór drátturinn fram á skrifstofu HSÍ.

Drátturinn varð þessi:

Hörður – Þór Akureyri
ÍBV 2 – Grótta
Valur 2 – Afturelding
Víkingur – ÍR

Í pottinum voru einnig Fjölnir, Fram, HK, ÍBV, Mílan, KA, Stjarnan og Þróttur og sitja þau hjá í 1.umferðinni ásamt Selfoss, FH, Haukum og Val.

Dregið verður í 16 liða úrslit karla og kvenna miðvikudaginn 16. október í Smárabíói kl. 12.15.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert