Góður leikur Theu dugði ekki til

Thea Imani Sturludóttir í leik með Oppsal.
Thea Imani Sturludóttir í leik með Oppsal. Ljósmynd/Oppsal

Landsliðskonan Thea Imani Sturludóttir og liðsfélagar hennar í Oppsal máttu þola 27:30-tap á útivelli fyrir Byåsen í efstu deild Noregs í handbolta í dag. 

Thea er að leika í efstu deild í fyrsta skipti, en hún hefur undanfarin ár leikið í neðri deildum Noregs. Skyttan átti góðan leik og skoraði fimm mörk. Hún var næstmarkahæst í sínu liði. 

Oppsal er án stiga eftir tvo leiki á leiktíðinni, en liðið er komið áfram í 4. umferð í norsku bikarkeppninni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert