Kiel hafði betur gegn Bergischer í Íslendingaslag í þýsku 1. deildinni í handbolta í dag, 34:29.
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði síðasta mark leiksins fyrir Kiel og var það eina mark Hafnfirðingsins í leiknum. Arnór Þór Gunnarsson og Ragnar Jóhannsson skoruðu þrjú mörk hvor fyrir Bergischer.
Kiel er í fjórða sæti deildarinnar með átta stig eftir fimm leiki og meðan Bergischer er í ellefta sæti með fimm stig eftir sex leiki.
Elvar Ásgeirsson skoraði þrjú mörk fyrir Stuttgart sem tapaði fyrir toppliði Hannover-Burgdorf á heimavelli 23:28 en Oddur Gretarsson komst ekki á blað hjá Balingen sem tapaði naumlega á heimavelli gegn Wetzlar, 33:34.
Stuttgart er í 17. sæti af 18 með aðeins eitt stig eftir fimm leiki á meðan Balingen er í 12. sæti með fjögur stig eftir sex leiki.