KA náði í fyrsta sigurinn gegn nýliðunum

Tarik Kasumovic skoraði átta mörk fyrir KA.
Tarik Kasumovic skoraði átta mörk fyrir KA. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

KA er komið á blað í Olísdeild karla í handbolta eftir 32:25-sigur á Fjölni á útivelli í kvöld. KA byrjaði með miklum látum og skoraði sjö fyrstu mörkin og áttu Fjölnismenn ekki möguleika eftir það.  

Staðan í hálfleik var 17:11, KA í vil. Fjölnir náði að minnka muninn í fimm mörk tíu mínútum fyrir leikslok, en nær komust nýliðarnir ekki og eru þeir einnig með tvö stig eftir þrjá leiki. 

Tarik Kasumovic skoraði átta mörk fyrir KA og Dagur Gautason gerði sjö. Brynjar Óli Kristjánsson skoraði átta mörk fyrir Fjölni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert