Stjarnan upp að hlið toppliðanna

Hanna Guðrún Stefánsdóttir skoraði sex mörk fyrir Stjörnuna.
Hanna Guðrún Stefánsdóttir skoraði sex mörk fyrir Stjörnuna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjarnan er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir í Olísdeild kvenna í handbolta. Stjarnan gerði góða ferð til Vestmannaeyja í dag og vann 25:17-sigur á ÍBV. 

Fyrri hálfleikur var jafn nánast á öllum tölum, en Stjarnan náði tveggja marka forskoti áður en hann varð allur og voru hálfleikstölur 11:9. 

Stjarnan var mikið sterkari í seinni hálfleik og bætti í forskotið sitt hægt og bítandi og var sigurinn að lokum sannfærandi. ÍBV er með tvö stig eftir umferðirnar þrjár. 

Hanna Guðrún Stefánsdóttir skoraði sex mörk fyrir Stjörnuna og Karen Tinna Demian gerði fjögur mörk. Klaudia Powaga varði 20 skot í markinu. Ásta Björt Júlíusdóttir skoraði sex mörk fyrir ÍBV. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert