„Stjarnan er með hörkulið og því kom ekkert á óvart þótt úr yrði baráttuleikur. Við náðum að halda út og vinna mikilvægan sigur, ekki síst eftir að við töpuðum í síðustu umferð,“ sagði Hildur Þorgeirsdóttir, leikmaður Fram, í samtali við mbl.is í dag eftir sigur Fram á Stjörnunni, 28:25, í Olís-deild kvenna í handknattleik. Liðin mættust á heimavelli Fram í Safamýri.
„Það var talsvert um mistök á báða bóga en okkur tókst að halda dampi til leiksloka sem var mikilvægt. Eins og alltaf þá lögðum við áherslu á vörnina og hún skilaði okkur sigrinum þegar upp var staðið,“ sagði Hildur.
„Góður varnarleikur lagði grunn að hraðaupphlaupum okkar þegar á leikinn leið. Sigurinn var afar mikilvægur. Það hefði verið skellur að tapa tveimur leikjum í röð,“ sagði Hildur Þorgeirsdóttir sem skoraði fjögur af mörkum Fram-liðsins að þessu sinni.