Forsetaheimsókn í Skjern

Guðni Th. Jóhannesson og Patrekur Jóhannesson.
Guðni Th. Jóhannesson og Patrekur Jóhannesson. Ljósmynd/twitter-síða Skjern

Lærisveinar Patreks Jóhannessonar í danska úrvalsdeildarliðinu Skjern taka á móti Álaborg í Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Fram kemur á twitter-síðu Skjern að Guðni Th.Jóhannesson, forseti Íslands, verður á meðal áhorfenda en eins og flestum ætti að vera kunnugt er hann bróðir Patreks.

Með liði Skjern leika Elvar Örn Jónsson og Björgvin Páll Gústavsson en með Álaborg þeir Janus Daði Smárason og Ómar Ingi Magnússon, sem hefur verið frá keppni vegna meiðsla síðustu vikurnar. Aðstoðarþjálfari liðsins er Arnór Atlason.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert