Skoraði 18 mörk í undanúrslitaleik

Sigvaldi Björn Guðjónsson átti ótrúlegan leik.
Sigvaldi Björn Guðjónsson átti ótrúlegan leik. AFP

Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður í handbolta, átti stórkostlegan leik er Elverum hafði betur gegn Halden í undanúrslitum norska bikarsins í kvöld. Sigvaldi skoraði átján mörk og var stærsta ástæða þess að Elverum vann 32:29-sigur. 

Sigvaldi skoraði mörkin átján í aðeins 21 skoti. Sjö markanna komu úr vítaköstum. Sigvaldi var gerður að fyrirliða Elverum fyrir leiktíðina og það er ljóst að hann kann vel við sig í leiðtogahlutverki. 

Elverum mætir Haslum í úrslitum, en Haslum hafði betur gegn Fyllingen í gær, 27:16. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert