Spilar ekki meira á þessu ári

Rut Arnfjörð Jónsdóttir.
Rut Arnfjörð Jónsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rut Arnfjörð Jónsdóttir, landsliðskona í handbolta og leikmaður danska meistaraliðsins Esbjerg, leikur ekki meira á þessu ári.

Rut hefur glímt við meiðsli í fæti og í samráði við félagið hefur verið ákveðið að hún gangist undir aðgerð svo hún geti orðið leikfær eins fljótt og hægt er. Aðgerðina á að framkvæma í dag.

Rut kom til Es­bjerg sum­arið 2017 og varð danskur meistari með því síðastliðið vor eftir sigur á Hern­ing í úrslitaeinvígi.

Esbjerg er með fjögurra stiga forskot á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert