Markahæstur og í liði umferðarinnar

Bjarki Már Elísson hefur spilað afar vel á leiktíðinni.
Bjarki Már Elísson hefur spilað afar vel á leiktíðinni.

Bjarki Már Elísson er í liði 16. umferðar þýsku 1. deildarinnar í handbolta fyrir frammistöðu sína fyrir Lemgo í 29:24-sigri á Nordhorn í gær. Bjarki fór á kostum og skoraði ellefu mörk. 

Vinstri hornamaðurinn er markahæstur í þýsku deildinni með 122 mörk, níu mörkum meira en Uwe Gensheimer og Hans Lindberg.

Bjarki hefur leikið afar vel með Lemgo, þrátt fyrir að liðið sé aðeins fjórum stigum fyrir ofan fallsætin. 

Auk Bjarka eru þeir Hendrik Pekeler, Michael Damgaard, Morten Olsen, Sime Ivic, Bobby Schagen og Benjamin Buric einnig í liði umferðarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert