Alfreð Gíslason í Heiðurshöll ÍSÍ

mbl.is/Kristinn Magnússon

Handknattleiksmaðurinn og þjálfarinn Alfreð Gíslason var í kvöld tekinn inn í Heiðurshöll ÍSÍ og er hann 19. íþróttamaðurinn sem hlýtur þann heiður. Hann tók við verðlaunum þess efnis í Hörpu.

Alfreð Gíslason er fæddur þann 7. september árið 1959. Alfreð átti farsælan feril sem handknattleiksleikmaður. Hann varð bikarmeistari með KR árið 1982 og Bidasoa Irún á Spáni árið 1991. Hann varð einnig tvisvar sinnum þýskur meistari með TUSEM Essen.

Alfreð var burðarás í landsliði Íslands, en hann lék 190 leiki fyrir íslenska landsliðið í handknattleik og skoraði í þeim 542 mörk. Hann var valinn besti leikmaður B-keppninnar í Frakklandi 1989 þar sem Ísland fór með sigur af hólmi. Alfreð var kjörinn Íþróttamaður ársins árið 1989. 

Alfreð þjálfaði uppeldisfélag sitt, KA, í sex ár. Hann gerði KA að bikarmeisturum 1995 og 1996, deildarmeisturum 1996 og Íslandsmeisturum 1997. Því næst fór Alfreð til Þýskalands þar sem hann þjálfaði samfleytt í 22 ár. Fyrst hjá Hameln í tvö ár, en tók við Madgeburg árið 1999 og þjálfaði þar í sjö ár. Hann gerði Magdeburg að þýskum meisturum og EHF-bikarmeisturum 2001 og ári seinna vann liðið Meistaradeild Evrópu.

Á árunum 2006 til 2008 þjálfaði Alfreð Gummersbach. Hann var landsliðsþjálfari Íslands 2006 til 2008 og stýrði íslenska liðinu á HM 2007 og EM 2008. Árið 2008 tók Alfreð við Kiel. Undir hans stjórn varð Kiel sex sinnum þýskur meistari, sex sinnum bikarmeistari, vann Meistaradeild Evrópu tvisvar sinnum og EHF-bikarinn einu sinni.

mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert