Bikartvíhöfði hjá Haukum og Fjölni

Haukar og Fjölnir mætast bæði í karla- og kvennaflokki í …
Haukar og Fjölnir mætast bæði í karla- og kvennaflokki í bikarkeppninni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Dregið var til átta liða úrslita bikarkeppni karla og kvenna í handknattleik, Coca Cola-bikarsins, nú í hádeginu en drátturinn fór fram í Smárabíói í Kópavogi.

Haukar og Fjölnir drógust saman hjá báðum kynjum en hvort félagið fær þó sinn heimaleik því karlaliðin mætast á Ásvöllum og kvennaliðin í Grafarvogi.

Þessi lið mætast í 8-liða úrslitum kvenna:

FH - Valur
HK - Fram
ÍR - KA/Þór
Fjölnir - Haukar

Þessi lið mætast í 8-liða úrslitum karla:

Afturelding - ÍR
Haukar - Fjölnir
Stjarnan - Selfoss
ÍBV - FH

Leikirnir fara fram 5. og 6. febrúar en úrslitahelgi bikarkeppninnar er um mánaðamótin febrúar/mars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert