Fjórtándi sigur Framara í röð

Sigurganga Framara hélt áfram gegn ÍBV.
Sigurganga Framara hélt áfram gegn ÍBV. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fram vann sinn fjórtánda leik í röð er liðið lagði ÍBV á heimavelli 31:25 í Olísdeild kvenna í handbolta í kvöld. Staðan í hálfleik var 17:13. 

ÍBV stóð í Fram framan af og var staðan 10:9 þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður. Þá náði Fram góðum kafla og var munurinn fjögur mörk í hálfleik. ÍBV tókst að minnka muninn í þrjú mörk í seinni hálfleik, en Fram hélt undirtökunum út allan leikinn. 

Steinunn Björnsdóttir skoraði níu mörk fyrir Fram, Ragnheiður Júlíusdóttir sjö og Þórey Rósa Stefánsdóttir sex. Sandra Dís Sigurðardóttir skoraði sjö fyrir ÍBV og Sunna Jónsdóttir sex. 

Fram er með 30 stig á toppi deildarinnar, þremur stigum meira en Valur. ÍBV er í sjöunda sæti með tólf stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert