Raðaði inn mörkum í fjórða sigrinum í röð

Teitur Örn Einarsson átti góðan leik.
Teitur Örn Einarsson átti góðan leik. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kristianstad vann sinn fjórða leik í röð í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta er liðið lagði Redbergslids á heimavelli, 29:27, í kvöld. 

Redbergslids var með 25:23-forystu þegar skammt var eftir en Kristianstad var sterkari aðilinn í lokin og tryggði sér sterkan sigur. 

Teitur Örn Einarsson átti góðan leik fyrir Kristianstad og skoraði átta mörk en Ólafur Andrés Guðmundsson lék ekki með liðinu vegna meiðsla. 

Kristianstad er í þriðja sæti með 38 stig, þremur stigum á eftir toppliði Malmö. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert